Skip to content
Salons10
GeoSilica Iceland

GeoSilica Iceland

Hafnargata 62, Keflavík Health/Beauty

GeoSilica framleiðir náttúruleg bætiefni til daglegrar notkunar fyrir endurnýjun líkamans frá toppi til táar.

Photos from GeoSilica Iceland's post 26/10/2026

Eistneskir sveitarstjórnarmenn heimsóttu GeoSilica 🌍

Stuðningur við nýsköpun í heimabyggð var í brennidepli þegar fulltrúar sveitarfélaga frá Eistlandi heimsóttu GeoSilica Iceland í Reykjanesbæ.
GeoSilica tók á móti fulltrúum VIROL, samtaka sveitarfélaga í Lääne Viru í Eistlandi, þann 23. október.

Fida Abu Libdeh, stofnandi og framkvæmdastjóri GeoSilica, kynnti starfsemi fyrirtækisins og mikilvægi Uppbyggingarsjóðs Suðurnesja fyrir þróun þess.

Í kynningunni rakti Fida vegferð GeoSilica frá námsverkefni til fyrirtækis sem vinnur verðmætan kísil úr jarðhitavatni og selur vörur á alþjóðlegum mörkuðum. Sérstök áhersla var lögð á hvernig stuðningur sjóðsins hefur nýst á ólíkum stigum, við vöruþróun, framleiðslu, hönnun, umbúðir og markaðssetningu.

Meginboðskapurinn var að litlir styrkir á réttum tíma geti haft mikil áhrif. Samfelldur stuðningur geti hjálpað fyrirtækjum að stíga næstu skref, sækja stærri styrki og skapa störf og verðmæti í heimabyggð.
Þrátt fyrir uppbyggingu á nýjum framleiðslustað á Þeistareykjum eru höfuðstöðvar GeoSilica áfram í Reykjanesbæ. Tengsl fyrirtækisins við Suðurnes, menntasamfélagið og stuðningsumhverfi svæðisins voru því einnig mikilvægur þáttur kynningarinnar.

Heimsóknin gaf tækifæri til að miðla íslenskri reynslu af nýsköpun og sýna hvernig staðbundinn stuðningur getur lagt grunn að alþjóðlegri starfsemi.

20/10/2026

💗 Söfnum fyrir brjóstaskimunartæki á Suðurnesjum

Konur á Suðurnesjum eiga að geta farið í brjóstaskimun í sinni heimabyggð. Nú getum við lagt okkar af mörkum til að gera það að veruleika. Samtök atvinnurekanda á Reykjanesi hafa hafið söfnun fyrir nýju brjóstaskimunartæki fyrir HSS. Markmiðið er að safna 50 milljónum króna, 34 milljónum fyrir tækinu sjálfu og 16 milljónum fyrir uppsetningu og undirbúningi aðstöðu. HSS hefur þegar sent þrjá geislafræðinga í þjálfun til að undirbúa skimanirnar. Þetta snertir okkur allar, mæður okkar, systur, dætur og vinkonur. Aðgengi að brjóstaskimun í heimabyggð skiptir máli.

Söfnuninni lýkur 18. nóvember, á afmælisdegi HSS. Hvert framlag hjálpar okkur að ná markmiðinu.

Svona getur þú lagt lið:

Á www.sar.is með greiðslukorti eða með millifærslu:
Samtök atvinnurekenda á Reykjanesi
Kennitala: 4811101220
Reikningur: 0133 26 022579

Við hvetjum ykkur öll til að taka þátt og deila söfnuninni. Saman getum við bætt heilbrigðisþjónustu á Suðurnesjum. 💗

sar.is Það þarf að hlúa að rótgrónum fyrirtækjum og einnig að frjóvga jarðveginn þannig að nýir sprotar geti vaxið.

Geosilica - frá hugmynd til veruleika 09/10/2026

Árið 2012 kviknaði hugmyndin að GeoSilica út frá einfaldri spurningu: Getum við nýtt íslenska jarðhitavatnið betur?

Síðan þá hefur mikið vatn runnið til sjávar og í dag stöndum við á spennandi tímamótum með uppbyggingu nýrrar starfsemi á Þeistareykjum.

Atvinnumál kvenna og Svanni-lánatryggingasjóður tók skemmtilegt viðtal við Fida Abu Libdeh, stofnanda og forstjóra GeoSilica, þar sem hún segir frá upphafi fyrirtækisins, áskorunum á leiðinni, mikilvægi góðra samstarfsaðila og þeim tækifærum sem fram undan eru.

Við hvetjum ykkur til að lesa þetta áhugaverða viðtal og kynnast betur sögunni á bak við GeoSilica. 💙

👉

Geosilica - frá hugmynd til veruleika GeoSilica er íslenskt fyrirtæki sem framleiðir 100% náttúruleg fæðubótarefni byggð á kísilsteinefnum sem unnin eru úr íslensku jarðhitavatni. Fyrirtækið nýtir sér einkaleyfisvarða tækni til að vinna…

Photos from GeoSilica Iceland's post 06/10/2026

Á dögunum fór fram Hönnunarþing á Húsavík þar sem Fida Abu Libdeh, stofnandi og framkvæmdastjóri GeoSilica, hélt erindi um það sem gerist þegar jarðvarmi, nýsköpun og hönnun mætast.

Við erum vön að hugsa um jarðvarma fyrst og fremst sem uppsprettu hita og rafmagns - en möguleikarnir ná mun lengra 💡

Hjá GeoSilica fær jarðhitavatnið framhaldslíf. Með rannsóknum, nýsköpun og hátæknilausnum vinnum við verðmæt steinefni úr jarðhitavatni sem annars væru vannýtt og umbreytum þeim í vörur sem rata alla leið til neytenda.

En góð tækni ein og sér er ekki nóg. Hönnun gegnir mikilvægu hlutverki í að brúa bilið á milli vísinda og neytenda - að segja söguna, skapa upplifun og gera flókna tækni að einhverju sem fólk skilur, tengir við og vill nota.

Erindi Fidu var því byggt í kringum áhugaverða spurningu:

Hvað fleira getum við hannað úr jarðvarmanum? 🌏

Takk fyrir okkur, Hraðið miðstöð nýsköpunar og Hönnunarþing og fyrir að skapa vettvang fyrir samtal um hönnun, nýsköpun og nýjar leiðir til að nýta þær einstöku auðlindir sem við búum yfir á Íslandi. 🌋

Á myndinni með Fidu er Katrín Sigurjónsdóttir, sveitarstjóri Þingeyjarsveitar, sem tók einstaklega vel á móti okkur.

Myndband Hraðsins um viðburðinn má sjá hér: https://lnkd.in/eZgCSUzs

Frá rannsóknarverkefni til alþjóðlegrar nýsköpunar: Saga GeoSilica og REGEOSS verkefnisins - EEN - Iceland 29/09/2026

Eins og mörg ykkar vita framleiðum við hjá GeoSilica Iceland fæðubótarefni úr kísli sem unninn er úr íslensku jarðhitavatni – en við höfum ekki látið þar við sitja.

Undanfarin ár höfum við rannsakað, ásamt samstarfsaðilum í Ítalíu, hvernig nýta megi þessa einstöku auðlind á fleiri sviðum, meðal annars í landbúnaði og iðnaði 🌏

Enterprise Europe Network á Íslandi segir frá ferðalagi GeoSilica og REGEOSS-verkefninu í nýrri grein. Við hvetjum ykkur til að lesa hana yfir kaffibollanum.

Við erum stolt af því að taka þátt í verkefni sem opnar ný tækifæri fyrir sjálfbæra nýtingu íslensks jarðhita.

https://een.is/regeoss-verkefnid-opnar-ny-taekifaeri-i-heilsu-landbunadar-og-idnadargeira/

Fida Abu Libdeh RANNÍS

Frá rannsóknarverkefni til alþjóðlegrar nýsköpunar: Saga GeoSilica og REGEOSS verkefnisins - EEN - Iceland Íslenska nýsköpunarfyrirtækið GeoSilica hefur náð mikilvægum áfanga í þróun sjálfbærrar tækni með þátttöku í Eurostars-verkefninu REGEOSS (Recovery of

28/09/2026

RENEW fyrir hár, húð og neglur ✨

Varan er sérstaklega vinsæl meðal kvenna sem upplifa hárlos eða þynningu á hári eftir fæðingu, hjáveituaðgerðir eða aðrar hormónabreytingar.

Hún er einnig vinsæl meðal einstaklinga með Alopecia Areata.

Ekki er ráðlagt að taka vöruna inn á meðgöngu en má nota samhliða brjóstagjöf. 🤍

Aðeins 1msk á dag 💧

Þreyta og orkuleysi: Járn og D-vítamín 21/09/2026

Finnur þú fyrir þreytu, orkuleysi eða að einbeitingin sé ekki alveg upp á sitt besta? 🥱 REFOCUS fyrir hug og orku er vinsæl meðal einstaklinga sem að vilja styðja við hug og orku án örvandi efna eins og koffíns eða orkudrykkja. Varan inniheldur 14mg járn, 15ug D-Vítamín og 100mg kísil 👏

Lestu meira um mikilvægi járns og D-vítamíns og REFOCUS hér:

Þreyta og orkuleysi: Járn og D-vítamín Þreyta, orkuleysi og léleg einbeiting eru eitthvað sem flest okkar kannast við. Svefn, álag, hreyfing og næring hafa auðvitað mikil áhrif á orkuna okkar en vítamín og steinefni skipta líka máli. Tvö mikilvæg næringarefni í því samhengi eru járn og D-vítamín – og þau eru ein...

Photos from Hraðið miðstöð nýsköpunar's post 17/09/2026

Föstudaginn 25.september verður Fida Abu Libdeh með erindi á Hönnunarþingi á Húsavík sem að Hraðið miðstöð nýsköpunar stendur fyrir. Erindið mun fjalla um hvað gerist þegar jarðvarmi, nýsköpun og hönnun mætast 🌱🌍🔥

17/09/2026

"Ég og maðurinn minn höfum tekið REFOCUS bætiefnið í um það bil 2 mánuði og við erum bæði sammála um að við náum að halda betri einbeitingu yfir daginn og eigum auðveldara með að sinna mörgum verkefnum samtímis í vinnunni. Í stuttu máli sagt þá erum við einbeittari að þeim verkefnum sem við erum að vinna að hverju sinni!" - Jonina 💙 REFOCUS er nú á haust tilboði 👏 20% afsláttur þegar keyptar eru 2 vörur eða fleiri með kóðanum "REFOCUS20". Linkur í athugasemd 👇🏽

Photos from GeoSilica Iceland's post 10/09/2026

🥉 GeoSilica Iceland hlýtur alþjóðlega viðurkenningu fyrir íslenska nýsköpun!

Við erum ótrúlega stolt að deila því að GeoSilica hlaut BRONZE Recognition á alþjóðlegri nýsköpunarsýningu í Silicon Valley, í samstarfi við IFIA-International Federation of Inventors' Associations - .official

Viðurkenningin tengist einkaleyfi GeoSilica og þeirri nýsköpun sem liggur að baki tækninni okkar GoeStep – að nýta kísil úr jarðhitavatni og skapa úr honum verðmæta vöru.

Sólveig okkar tók við viðurkenningunni fyrir hönd GeoSilica í gær, en við erum afar þakklát fyrir þessa viðurkenningu á íslenskri hugvitssemi og nýsköpun 💙

Við viljum jafnframt þakka Elinora Inga Sigurdardottir FRSA fyrir að koma GeoSilica á framfæri við IFIA og fyrir hennar mikilvæga starf í þágu íslenskra frumkvöðla.

Frá íslenskri jarðhitaauðlind til alþjóðlegrar viðurkenningar! 🌍

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when GeoSilica Iceland posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Subscribe

We will notify you when anything happens in Keflavík.