Pronails Ísland

Pronails Ísland

Share

Á þessari síðu er allt það nýjasta frá Pronails og ýmsar skemmtilegar uppl.

05/07/2026

💖 Tvö litasöfn. Ein LongWear ástríða. ✨

Kynntu þér La Vie en Bloom og Viva La Vida – tvö LongWear litasöfn sem sameina fallega liti, glæsilegan g***s og allt að tvöfalt lengri endingu en hefðbundin naglalökk.

✨ Allt að tvöfalt lengri ending en hefðbundin naglalökk
✨ Allt að 7 dagar án þess að flagna
✨ Enginn UV eða LED lampi þarf
✨ Einfalt 3 skrefa kerfi: Start – Colour – Finish
✨ Knúið af ColourFix Technology

💅 Kynntu þér LongWear System á PRONAILS.IS

Photos from Pronails Ísland's post 02/07/2026

🌸 Kynntu þér ProNails LongWear System

Einfalt 3 skrefa naglalakkskerfi sem veitir faglega útkomu og allt að tvöfalt lengri endingu en hefðbundin naglalökk. 💅

✨ Allt að 7 dagar án þess að flagna
✨ Fallegur g***s
✨ Sterkir og endingargóðir litir
✨ Einfalt 3 skrefa kerfi: Start – Colour – Finish
✨ Enginn UV eða LED lampi þarf
✨ Knúið af ColourFix Technology

Frá mjúkum n**e tónum yfir í líflega bleika liti – SS26 La Vie en Bloom LongWear Box inniheldur allt sem þú þarft fyrir fallega og endingargóða handsnyrtingu. 💖

Skoðaðu úrvalið inná PRONAILS.IS 🛍️

Photos from Pronails Ísland's post 29/06/2026

✨ Grunnnámskeið í naglafræði✨

Á þessu námskeiði er kennt allt sem þú þarft til að verða naglafræðingur.

Tímarnir skiptast í 6 skipti sem nemandi þarf að mæta í ásamt því að æfa sig vel heima milli kennslustunda.

Litlir hópar til að tryggja að allir fái jafn góða kennslu.

Unnið er mest með módel en líka gervihendur.

Boðið er uppá 3 mismunandi vörupakka og innihalda þeir allt sem þú þarft til að byrja og meira til.
Hægt er að skoða vörupakkana inná PRONAILS.IS

Næstu námskeið byrja í September og Janúar, hægt er að byrja strax á Akranesi.

Skráning og/eða fyrirspurnir má senda á Facebook/Instagram ProNails Ísland

PRONAILS Naglaskólinn er staðsettur á:
Akureyri - Naglaskóli ProNails Akureyri
Akranesi - Snyrtistofan Mey
Reykjanesbær - Hár- og snyrtistofan Ziva

Photos from Pronails Ísland's post 27/06/2026

🤍 Hvernig býrðu til fallegt Babyboom? ✨

Flettu í gegnum myndirnar og fylgdu skrefunum. ➡️

Babyboom er klassískt útlit sem fer aldrei úr tísku og hentar við öll tilefni.

Fallegt Babyboom byggist á réttum vörum, góðri tækni og mjúkri yfirfærslu á milli bleika og hvíta litarins.

📌 Vistaðu færsluna svo þú eigir kennsluna við höndina næst þegar þú gerir Babyboom.

🌐 ProNails.is

Photos from Pronails Ísland's post 23/06/2026

🩷 PINK BASE GEL er komið aftur!

Ekki að ástæðulausu er þetta eitt vinsælasta base gelið hjá naglafræðingum 👇

✔ Gefur naglabeðinu strax fallegan og náttúrulegan bleikan lit

✔ Fullkomið undir French manicure

✔ Mjúk miðlungsþykkt sem gerir gelið þægilegt í vinnslu

✔ Hentar öllum naglatýpum

✔ Herðist á aðeins 30 sekúndum í FULL stillingu

Nú aftur fáanlegt í 15 ml og 50 ml dósum ✨

💬 Er Pink Base Gel eitt af þínum uppáhalds? Segðu okkur af hverju 🩷

🌐 ProNails.is

17/06/2026

Heitt úti? 🔥🥵 Komdu í veg fyrir hitasting með 60 SOFT stillingunni á Smart Light lampanum 💡

Sama stillingin hentar ekki alltaf öllum viðskiptavinum.
Hér eru 3 aðstæður þar sem 60 SOFT er besti kosturinn 👇

1️⃣ Það er heitur dagur og hendur viðskiptavinarins eru þegar orðnar heitar. ☀️

2️⃣ Viðskiptavinurinn nagar neglurnar eða er með skemmdar og viðkvæmar neglur.

3️⃣ Þú ert að vinna með viðskiptavin sem er að fá gel í fyrsta skipti eða er sérstaklega viðkvæmur fyrir hita.

Af hverju að nota 60 SOFT?

Smart Light lampinn byrjar herðinguna á mjög lágum styrk og eykur ljósstyrkinn smám saman yfir 60 sekúndur. Þetta gerir gelinu kleift að herðast á mildari hátt og hjálpar til við að draga úr hitatilfinningu sem getur valdið óþægindum.

✨ Fyrstu 20 sekúndurnar: 20% styrkur
✨ Næstu 20 sekúndur: styrkur eykst smám saman
✨ Síðustu 20 sekúndurnar: 100% styrkur

Niðurstaðan?

✔️ Sama og með 30 SOFT

Munurinn?

💙 Viðskiptavinurinn finnur fyrir mun minni hita meðan á herðingu stendur. Fyrir viðkvæmar neglur getur það skipt sköpum.

Photos from Pronails Ísland's post 12/06/2026

🇧🇪 Distributor Day hjá ProNails HQ ✨

Dagurinn byrjaði snemma þegar við hittumst á hótelinu og fórum saman yfir í höfuðstöðvar ProNails í Brasschaat.

Þar hittust dreifingaraðilar víðs vegar að úr heiminum til að fara yfir nýjungar, það sem er framundan hjá ProNails og fá innsýn í verkefnin sem verið er að vinna að. 💅🏻

Mér finnst alltaf jafn gaman að heyra hvað er að gerast á öðrum mörkuðum og fá hugmyndir sem hægt er að taka með sér heim til Íslands.

Í hádeginu gafst svo tækifæri til að skoða framleiðsluna og rannsóknarstofurnar þar sem ProNails vörurnar eru þróaðar. Það er ótrúlega áhugavert að sjá alla vinnuna sem liggur að baki vörunum sem við notum á hverjum degi.

Það er líka alltaf gaman að hitta fólkið á bak við vörumerkið og eiga góð samtöl við samstarfsfólk og dreifingaraðila frá öðrum löndum. ✨

Núna tekur við örstutt hvíld á hótelinu áður en kvölddagskráin hefst í Antwepen.

Photos from Pronails Ísland's post 12/06/2026

🇧🇪 Komin til Brasschaat í Belgíu á Distribution Day hjá ProNails ✨

Dagsskráin hófst í gær á óformlegum kvöldverði þar sem dreifingaraðilar, samstarfsaðilar og starfsfólk ProNails komu saman til að hittast, spjalla og ná saman eftir síðasta ár.

Það er alltaf jafn gaman að hitta fólk sem maður hefur unnið með í gegnum árin, deila reynslu, fá nýjar hugmyndir og heyra hvað er að gerast hjá öðrum mörkuðum. 💅🏻

Mikil tilhlökkun fyrir deginum í dag og öllu því spennandi sem framundan er hjá ProNails.

09/06/2026

📦 Vantar þig vörur fyrir helgina?

Ég held til Belgíu á fimmtudaginn og því er síðasti séns til að fá vörur afhentar fyrir helgi að ganga frá pöntun í dag eða á morgun. ✨

Hvort sem þig vantar uppáhalds BFLEX litinn þinn, rekstrarvörur eða eitthvað af nýju vörunum á síðunni, þá mæli ég með að panta sem fyrst.

📦 Pantanir sem berast eftir það fara út á mánudaginn.

✨ Athugið að vörur merktar sem forpöntun á ProNails.is eru væntanlegar til landsins 17. júní og verða afgreiddar um leið og þær berast.

🇧🇪 Ég stefni svo auðvitað líka á að koma heim með eins fullar töskur af ProNails vörum og mögulegt er 😅

🌐 ProNails.is

05/06/2026

Röndótta naglatrendið sem þú munt sjá alls staðar í sumar ✨💅 ⁠

Mjúkir tónar, g***sandi smáatriði og fínlegar línur… þetta útlit er fullkomin blanda af klassísku og minimalísku trendi 🤍 ⁠

Svona býrðu það til: ⁠

✔️ Byrjaðu með BSTRONG Bubble fyrir sterkan og náttúrulegan grunn ⁠
✔️ Hertu undir lampanum ⁠
✔️ Notaðu Liner Pro Brush til að skapa hreina French línu með BCOLOUR Pisco Sour ⁠
✔️ Bættu við mjúkum röndum með BCOLOUR Lila Lama ⁠
✔️ Gerðu eina nögl alveg röndótta fyrir extra trend detail ⁠
✔️ Ljúktu með lagi af BSTRONG Bubble fyrir einstaklega g***sandi áferð ✨ ⁠

Elegant nail art útlit sem er auðvelt að skapa og fullkomið fyrir öll tímabil 🤍 ⁠

Verslaðu allar vörurnar sem voru notaðar í gegnum hlekkinn í bio. ⁠

PRONAILS.IS

Want your business to be the top-listed Nail Salon in Akranes?
Click here to claim your Sponsored Listing.

Telephone

Address


Húsatún
Akranes
606

Opening Hours

Monday 09:00 - 13:00
Tuesday 09:00 - 13:00
Wednesday 09:00 - 13:00
Thursday 09:00 - 13:00
Friday 09:00 - 13:00