Fegrunarfyllingar
Contact information, map and directions, contact form, opening hours, services, ratings, photos, videos and announcements from Fegrunarfyllingar, Health/Beauty, Mýrarvegur Kaupangi, Akureyri.
Fylliefna- og skinbooster meðferðir
�Bráðahjúkrunarfræðingur
�Aesthetic nurse cert.
~ Lip filler masterclass cert.
~ Advanced masterclass in Facial Contour cert.
~ Fat dissolving cert.
23/11/2022
Ég minni á að bókanir hjá mér munu nú fara fram inn á Noona svæði Derma Klíník Akureyri 🥰 Við Inga Heinesen hjúkrunarfræðingur og sálusystir ætlum að sameina krafta okkar til að geta boðið kúnnum okkar upp á frábæra þjónustu og viðburði í náinni framtíð. Hlakka til að sjá ykkur, fastakúnna sem og nýja 💕
06/11/2022
Varafylling er klárlega vinsælasta meðferðin.
Náttúrulegt og fallegt er alltaf markmiðið ✨
14/09/2022
Ástæðan fyrir því afhverju mér finnst þetta svona gefandi starf 🤩
Kúnni sem var að láta laga tennurnar sínar og þegar ferlið var búið fannst henni hún hafa misst sínar einkennandi varir og munnsvip. Þetta er algeng upplifun hjá fólki sem hefur verið með spangir til dæmis í lengri tíma og svo þegar spangirnar eru teknar er ekkert lengur til að styðja undir varirnar. Þessari yndislegu konu fannst hún hafa fengið skyndilegan fýlusvip og efri vör minni en hún var vön.
Þessi meðferð miðaðist við náttúrulegt útlit og reyna að fá hennar svipbrigði til baka. Og það tókst! 🙏🏼
Það gerðum við með hjálp 0,7ml af léttu efni í varirnar ásamt rúmlega hálfri sprautu af öðru efni í munnvik til að styðja undir og snúa þeim upp á við.
Hversu frábært 🥰
Noona | Bókaðu tíma í allt, núna. Bókaðu tíma í hvað sem er hjá uppáhalds fyrirtækjunum þínum, hvenær sem er og hvar sem er inni á noona.is eða Noona appinu.
21/08/2022
Langar þig að laga eitthvað en veist ekki undir hverju það flokkast á listanum? Bókaðu ráðgjöf og við förum yfir það í sameiningu eða sendu mér línu 🫶🏼
21/08/2022
Kúnni eftir 1 meðferð af skinbooster auk fylliefnis í varir 🙌🏼
Hvað gerir skinbooster?
▪️Skinboosterar innihalda hátt hlutfall af Hýalúronsýru. Þeim er sprautað í litlu magni rétt undir húðina. Á nokkrum dögum dregur svo hýalúronsýran í sig mikið vatn og veitir þannig vefjum og húð mikinn raka.
▪️Frá 28 ára aldri missum við í kringum 1% á ári af okkar náttúrulegri Hýalúronsýru. Þegar það gerist verður húðin þurrari ásamt því að fínar línur og hrukkur fara að myndast.
▪️Anti-aging krem innihalda flest Hýalúronsýru en erfitt getur reynst að veita húðinni nægan raka utan frá. Skinbooster gerir það innan frá með góðum árangri.
▪️Skinboosterar veita húðinni mikinn raka og fyllingu. Hún verður meira glowy, áferð húðarinnar verður betri og ferskari ásamt því að fínar línur minnka og húðin verður stinnari.
▪️ Til að fá sem bestan árangur af Skinboosterum þarf að sprauta efninu 2-4x skipti með 2-4 vikna millibili. Eftir það er hægt að viðhalda með nokkurra mánaða fresti.
▪️Mæli með skinbooster fyrir alla sem fyrstu meðferð eða með öðrum meðferðum.
21/08/2022
21/08/2022
Fylliefni í varir og höku 🌷
Meðferð í höku getur gert svo mikið fyrir ’hliðarprófíl’ 👌🏽
⬅️Fyrir
➡️Eftir
20/08/2022
17/08/2022
Náttúruleg varafylling með 1ml Volbella gert í 2 skiptum með 3vikna millibili.
Seinni myndir teknar beint eftir meðferð 🥰
# #
Click here to claim your Sponsored Listing.
Category
Contact the business
Telephone
Address
Mýrarvegur Kaupangi
Akureyri
600
