Heilsuhofið
Bjóðum uppá Indverskt Ayurveda nudd, Kínverskt fótanudd, Reikiheilun, Reikinámskeið,fitufrystingu, sogæðameðferðir ofl.
22/03/2026
Ég er á því skemmtilega námskeiði sem heitir „Leiðarljósið ég“
Eitt af þeim verkefnum sem við eigum að gera er að skrifa á samfélagsmiðlana td hver okkar Gildi eru hvort sem það er okkar eigin eða í okkar vinnu sem meðferðaraðilar.
Ég skal alveg viðurkenna það að þetta er ekki auðvelt, og ég búinn að draga þetta aðeins á langinn.
En mín Gildi eru Kærleikur, jákvæðni, Gleði og fordómaleysi.
* Kærleikur
Ég næri mig og aðra í hreinum kærleika.
*Jákvæðni
Ég horfi jákvæðum augum á lífið.
*Gleði
Ég tek á móti hverjum degi glaður í lund.
*Fordómalaus
Hjá mér eru allir jafnir.
Ég tek á móti fólki með kærleika, hlýju og jákvæðni með bros á vör, finn fyrir gleði í hjarta mínu algjörlega fordómalaus ❤️
Hvað með ykkur? Hafið þið skoðað ykkar Gildi?
20/02/2026
Námskeiðið Þjálfun skyggnigáfunnar og miðilshæfileikans með Paloma Zendings verður haldið 28. mars kl. 13:00-19:00 og 29. mars. kl. 10:00-16:00
Viltu læra meira um andlegar gjafir þínar? Þetta kröftuga helgarnámskeið er fyrir öll sem vilja kanna og styrkja innsæi sitt og miðilsfærni og hentar vel fyrir byrjendur sem og lengra komna.
Smelltu á linkinn til að fá nánari upplýsingar: https://www.facebook.com/events/1476188203934215
21/01/2026
Viltu læra og eða þróa miðlun og heilun?
Námskeið í miðlun og heilun. Leiðbeinandi er Einar Axel Schiöth
Farið verður í gegnum aðalatriðin í miðlun og heilun og fleiri hagnýt atriði sem tengjast því. Einnig verður farið í gegnum jarðtengingu, vernd, hugleiðslu, innsæi og hvernig skal bera sig að. Einnig er farið í gegnum hinar ýmsu tegundir miðlunar og heilunar en þetta tvennt tengist allt saman þegar unnið er með þessa hæfileika. Þetta er einstaklings námskeið og tekur 3 tíma, einn tími í einu, með viku til 20 daga millibili. Þetta er hugsað bæði fyrir byrjendur og lengra komna.
Allar nánari upplýsingar veitir
Einar Axel Schiöth
email: [email protected]
Sími: 8944744
Bókanir á https://noona.is/srfa
Námskeið hefst 2.-6. feb.
29/11/2025
Hver er munurinn á Reiki 1, 2 og 3?
Og hvað lærirðu á hverju stigi fyrir sig og hvað geri það fyrir mann? Og fyrir hverja er hvert stig?
Reiki 1 – Sjálfsheilun & grunnurinn
Hvað Reiki 1 gerir:
Opnar orkuflæðið á líkamlegu og tilfinningalegu stigi
Kenndi nemanda að tengjast Reiki-orku og nota hana á sjálfan sig og aðra
Veitir fyrstu innvígslu (Reiju/Attunement) sem eykur næmni og innsæi
Hjálpar til við að hreinsa gamla tilfinningablokkeringa
Kennir handayfirlagningu, skynjun orku og orkustöðvar (chakra)
Hæfileikar eftir Reiki 1:
Geta til að framkvæma hands-on Reiki
Sjálfsheilun, daglega eða eftir þörfum
Grunnskilningur á orku, skynjun og jafnvægi
Byrjar oft andlegt uppvakningartímabil
Hverjir taka Reiki 1?
Allir sem vilja læra heilun fyrir sig sjálfa
Þeir sem eru að stíga sín fyrstu skref í orkumeðferð
---
Reiki 2 – Framhaldsstig & fjarlægðarheilun
Hvað Reiki 2 gerir:
Djúpkrefur orkuflæðið og tengir við hærri tíðni
Kennir Reiki-tákna (Cho Ku Rei, Dai Ko Myo, Sei He Ki, Hon Sha Ze Sho Nen)
Opnar leið til fjarlægðarheilunar
Eykur andlega tengingu, innsæi, miðlun og næmni
Hjálpar við að vinna með fyrri líf, karmíska þræði og undirvitund
Hæfileikar eftir Reiki 2:
Geta til að senda Reiki í tíma og rúmi
Notkun tákna til að magna upp orku, hreinsa og vernda
Meðferðargjöf verður sterkari og dýpri
Hentar vel fyrir faglega vinnu með öðrum
Hverjir taka Reiki 2?
Þeir sem vilja verða Reiki-meðferðaraðilar
Þeir sem vilja dýpka andlega og miðlunartengingu sína
Meginmunur á Reiki 1 og 2:
Reiki 1 = líkamlegt og nálægt
Reiki 2 = andlegt, fjarlægt og miklu öflugra
---
Reiki 3 – Reiki Master / Kennari
Hvað Reiki 3 gerir:
Opnar Master-táknið (Dai Ko Myo ofl.) sem tengir við sálstigin
Djúp innra vakning og orkufræðileg umbreyting
Kennir Master-heilun, hærri tíðni og orkustýringu
Veitir nemandanum rétt til að innvíga aðra (sem Master Teacher)
Hæfileikar eftir Reiki 3:
Vígður Reiki Master
Geta til að veita Master-tengingar og innvígslur
Mjög djúpur andlegur þroski og leiðsögn
Sterk tenging við leiðbeinendur og higher self
Stórir stígar opnast í miðlun, innsæi og heilunar-fræði
Hverjir taka Reiki 3?
Þeir sem ætla að kenna Reiki
Þeir sem vilja verða leiðtogar í orkuvinnu
Þeir sem eru að svara kallinu sínu sem ljósberar
Meginmunur á Reiki 2 og 3:
Reiki 2 = fagleg meðferð og fjarlægð
Reiki 3 = þroski, viska, kennsla og hærri vídd
---
Stutt og skýr samantekt
Reiki 1 – Grunnur, sjálfsheilun, opnun á orku
Reiki 2 – Fjarlægðarheilun, Reiki-tákn, dýpri orka
Reiki 3 – Master-stig, kennsla, djúp andleg umbreyting
Hefurðu áhuga á að læra þessa ævafornu, sterku og einstöku heilunaraðferð sem bæði eykur næmni þína, andlega visku og þroska?
Sendu mér einkaskilaboð og ég skrái þig niður hvar sem þú ert á landinu, ég hef bæði verið að kenna Reiki víða um land og eins erlendis þar sem hópur Íslendinga fer saman og er saman á orkumiklum svæðum sem bæði gerir fólk samheldnara, betri einbeiting, nær betur tökum þar sem við erum saman í orkunni í um viku tíma í lúxusferðum.
Eftir námskeiðið hafið aðgang að kennara nánast ótakmark það sem eftir er.
Hef yfir 30 ára Reiki reynslu, hef kennt tugi Reikiheilara með góðum árangri í ca 15 ár
Kær kveðja
Ívar Örn Þórhallsson
Reikimeistari
Englareikineistari
Fyrra lífs heilari
Dáleiðsluheilari ofl
13/10/2025
Fylgstu með dagskránni okkar, hún tekur stöðugum breytingum! ✨Allt að gerast :)💜🌞
Reikimeistara námskeiðinu lokið og við búin að ferðast um eyjuna og skoða margt en klaustrið stóð algjörlega uppúr þeirri ferð um Amorgos
11/10/2025
Fórum í klaustur sem er síðan árið 800 og eitthvað eða ca 1200 ára gömul. Yndisleg orka þarna og fór ég í smá hugleiðslu í bænaherberginu.
Þar upplifði ég stóra veru sem minnti mig á Maríu mey í englamynd. Þegar ég bað um nafn og hver hún væri þa sagðist hún heita Kleópetra og að hún væri verndari staðarins 🥰
07/10/2025
Er að halda Reikimeistara námskeið hérna á Amorgos
Amorgos er mjög gömul eyja – ein sú elsta í allri Kýklades-eyjaklasanum í Grikklandi.
Jarðfræðilega er hún hluti af fornu bergkerfi sem myndaðist fyrir um 200–250 milljón árum, á svipuðum tíma og aðrar eyjar í suðausturhluta Egeahafs.
En ef við tölum um mannlega sögu, þá hefur Amorgos verið byggð í þúsundir ára:
Fornleifar sýna að þar bjuggu menn fyrir meira en 5.000 árum, á nýsteinöld (um 3000 f.Kr.).
Á bronstímanum (um 2500–2000 f.Kr.) var hún hluti af hinni frægu forn-kýkladísku menningu, þekkt fyrir hvít marmarastyttiur sem finnast víða á eyjunni enn í dag.
Á forn-grískum tíma var Amorgos sjálfstætt borgríki og síðar hluti af Aþenu-bandalaginu.
Þannig að — jarðfræðilega séð er hún hundruð milljóna ára gömul, en menningarlega hefur hún meira en 5.000 ára samfellu í mannlífi 🌿✨
04/10/2025
Verið hjartanlega velkomin í heilun alla laugardaga kl. 10-12 & miðvikudaga kl. 16-18. Notaleg og nærandi stund í hjarta félagsins okkar. 🪷🌷Nýir sem eldri félagar velkomnir❤️
https://www.facebook.com/saloakr/
04/10/2025
Köku- og Handverksbasar - fjáröflun fyrir félagið
sun., 05. okt. kl. 13-16:30 í Sálarrannsóknarfélaginau á Akureyri (Strandgötu 37 B bakhús) Margskonar góðgæti, kökur, brauð, handverk, allt sem félagsmenn eru að gefa til félagsins. Einnig verða vöfflur og kaffi til sölu. Sæti meðan húsrúm leyfir.
Verið hjartanlega velkomin. https://www.facebook.com/events/1984696665686312
Þeir sem hafa áhuga á að styrkja félagið beint:
Bankareikningur:
0302-26-100801
Kennitala:
711084-1269
Allur stuðningur fer í starf og uppbyggingu félagsins.
Hjartans þakkir fyrir veittan stuðning.
02/10/2025
Ferðalagið til Grikklands með hóp af verðandi Reikimeisturum hafið. Hlakka mikið til að kenna Reikimeistarann með sama hóp og lærðu hjá mér Reiki 1 og 2 á Gran Kanarí fyrir nákvæmlega ári síðan 🥰
Svo fer maður að plana næstu ferð á næsta ári með Reiki 1 og 2.
Gæti orðið 2 ferðir miðað við áhugann sem mér hefur verið sýndur ❤️
16/09/2025
With Sálarrannsóknarfélagið á Akureyri – I just got recognized as one of their top fans! 🎉
Click here to claim your Sponsored Listing.
Category
Contact the business
Website
Address
Tryggvabraut 22, 2 Hæð
Akureyri
600
Opening Hours
| Monday | 10:00 - 18:00 |
| Tuesday | 10:00 - 18:00 |
| Wednesday | 10:00 - 18:00 |
| Thursday | 10:00 - 18:00 |
| Friday | 10:00 - 18:00 |
