Grasa Kata
Ég heiti Katrín Fjóla Guðmundsdóttir og þessi síða er tileinkuð nytja- og lækningajurtum og námi mínu í grasalækningum í gegnum vefsíðuna grasakonan.is
Ég heiti Katrín Fjóla Guðmuhndsdóttir og hóf nám í grasalækningum haustið 2025
05/08/2026
Í nágrenni við mig vex mikið af sigurskúf sem blómstrar þessa dagana fallegum bleikum blómum. Fékk uppskrift af blómahunangi og varð náttúrulega að prófa. Lauf og ungir laufsprotar eru helstu lækningahlutarnir en blóm eru einnig notuð til lækninga og í matargerð. Jurtin er m.a. talin bólgueyðandi, þvagörvandi, slímlosandi og græðandi.
Uppskriptin er sàraeinföld
2 bollar blóm af sigurskúf
250 ml vatn
250 ml hunang
Blómin hreinsuð og nýsoðnu vatni helt yfir þau og látið kólna, þá er safinn síaður frá og sett í pott ásamt hunanginu, soðið í 10 mín og helt í hreina krukku.
Gott útá jógúrt eða bara á ristað brauð.
26/07/2026
Smá sýnishorn af flórunni í Týrol, Austurríki og Ítalíu
16/07/2026
Fleiri falleg blóm
07/07/2026
Fallegu íslensku jurtirnar 🥰🌿
02/07/2026
Fyrir áhugasama um jurtir vil ég benda á Flóruspilið til tveir mismunandi stokkar með fallegum myndum og fróðleik um íslenskar jurtir, spilað eins og veiðimann
01/07/2026
Fékk tvær grasakonur í heimsókn, mikið spjallað um jurtir og nytsemi þeirra, svo tíndum við líka nokkrar góðar jurtalækningajurtir 🥰🌿 m.a. maríustakk, vallhumal, sigurskúf, hrafnaklukku og hvönn.
21/06/2026
Ömmustelpurnar vildu fá að borða regnbogann 🌈
20/06/2026
Prófaði að sneiða niður rabbabaraleggi með ostaskera og þurrka. Á helminginn setti ég fíflasíróp en ekkert á hina. Hið besta snakk 🥰
Rabarbari er holl og næringarrík planta sem inniheldur mikið af K-vítamíni, trefjum og andoxunarefnum. Jurtin hefur lengi verið nýtt í matargerð, en einnig í lækningaskyni.Helstu kostir og gagnsemi. Trefjar í rabarbara geta stuðlað að bættri meltingu. Rætur plöntunnar hafa einnig verið notaðar í hefðbundnum lækningum til að draga úr hægðatregðu.Styrkir bein og blóð: Rabarbari er ríkur af K-vítamíni sem er mikilvægt fyrir eðlilega beinmyndun og blóðstorknun. Andoxunarefni: Rauði liturinn gefur til kynna öflug andoxunarefni sem vinna gegn skaðlegum sindurefnum í líkamanum. Vítamín og steinefni: Hann inniheldur einnig gott magn af kalki, C-vítamíni og beta-karótíni.
20/06/2026
Njótum þess að vera úti í náttúrunni 🌿
19/06/2026
Bakaði svo súrdeigsbrauð með hvönn og trönuberjum, tókst svona ljómandi vel, virkilega bragðgott 🥰
Click here to claim your Sponsored Listing.
Category
Website
Address
Svalbarð
Dalvík
621
