Dharma heilsa
Heilsunuddstofa & snyrtistofa Hver tími hjá DHARMA er endurnærandi stund fyrir bæði líkama og sál.
DHARMA er snyrtistofa og heilsunuddstofa þar sem lögð er áhersla á persónulega þjónustu og notalegt andrúmsloft með upphituðum bekkjum, slakandi tónlist og dempaðri lýsingu.
Psst... þú mátt vera með vesen!!!
30/06/2026
10/06/2026
Í sumar verður opið fyrir bókanir nokkra laugardaga og sunnudaga.
Við höfum þegar opnað fyrir:
Lau 13. júní
Sun 14. júní
Lau 27. júní
Sun 28. júní
Lau 11. júlí
Lau 8. ágúst
Sun 9. ágúst
Það mun að öllum líkindum verða opnað fyrir bókanir á fleiri helgardögum í sumar, það verður auglýst á story 🤩
08/06/2026
Dharma teymið fylgir þessum gildum af heilum hug 🤍
03/06/2026
Gefðu gjöf sem segir:
„Þú átt skilið stund fyrir þig – vellíðan, slökun og endurnæringu fyrir líkama og sál.“
Gjafakort frá Dharma er falleg gjöf fyrir afmæli, útskrift, brúðkaup, starfsfólk, nýbakaða foreldra eða einfaldlega hvern sem er í lífi þínu sem á gott skilið!
✨ Gjafakortin fást á Dharmaheilsa.is ✨
02/06/2026
Fyrir ykkur sem eigið erfitt með að komast í nudd á vinnutíma þá býður snillingurinn hún Saga líka upp á tíma alveg til kl.20 suma daga og einnig sýna laugardaga og sunnudaga!
Bókanir á Noona.is/dharmaheilsa
29/05/2026
🌬️
18/05/2026
Mælum með! Dharma er í afar farsælli sambúð með Samkennd í Tunguhálsinum 🤩
Samkennd - Heilsusetur Við bjóðum upp á fjölbreytta og umvefjandi þjónustu vel menntaðra fagaðila.
15/05/2026
Enn bætast við snillingar í teymið okkar!
Saga er nýútskrifaður heilsunuddari af Heilsunuddbraut FÁ. En það er gríðarlega yfirgripsmikið og fjölbreytt nám sem spannar 2 verklegar annir eftir að grunnfögum í bóklegu námi er lokið. Að því loknu þurfa nemendur svo að nudda í samtals 450 klst til að mega útskrifast sem heilsunuddarar.
Saga er frábær heilsunuddari og er jafn góð í þéttu djúpvefjanuddi og nærandi slökunarnuddi. Hún leggur sig alla fram um að nuddþeganum líði vel og nuddar af alúð og umhyggju. Hún er með afar góða nærveru og fær okkar allra bestu meðmæli! Hún býður upp á klassískt nudd, djúpvefjanudd og slökunarnudd og hægt er að bóka tíma hjá henni á Noona.is/dharmaheilsa
01/05/2026
Þórir er orðinn fullmenntaður heilsunuddari þar sem hann hefur nú lokið öllum verklegum áföngum og klárað þá 450 nuddtíma sem krafist er til útskriftar. Við óskum honum innilega til hamingju með áfangann og erum afar stolt af því að hafa hann í teyminu okkar! Þórir er virkilega góður heilsunuddari og hefur hjálpað svo mörgum af okkar viðskiptavinum síðan hann byrjaði að nudda hjá okkur í september í fyrra. Nuddin hjá honum munu nú vera á fullu verði í stað nemaverðs.
Ps. Heilsunuddaranámið er alveg gríðarlega yfirgripsmikið og fjölbreytt nám í FÁ sem spannar 2 verklegar annir eftir að grunnfögum í bóklegu námi er lokið. Fyrir utan ítarlega þekkingu í vöðva- og hreyfifræði læra heilsunuddarar klassískt nudd, svæðanudd, heildrænt nudd, sogæðanudd, íþróttanudd, þrýstipunktanudd, vefjalosun, triggerpunktameðferð, höfuðbeina- & spjaldhryggjarmeðferð, íþróttateipingar og ilmolíufræði. Og að öllu því loknu þurfa þau að nudda í samtals 450 klst til að mega útskrifast sem heilsunuddarar.
Click here to claim your Sponsored Listing.
Category
Contact the business
Telephone
Address
Tunguhálsi 19
Reykjavík
110
